Opnun E-label og Emm 2. okt...

Gudbjorg 2. Okt opnar E-label og Emm á laugarvegi 33 milli 16-20 .. persónulega finnst mér fötin frá E-label geðveikt flott og töff.. ef það væri ekki vegna krepputíma þá væri ég sko löööööngu búin að fá mér nokkrar töff flíkur. Ég er allavega virkilega að spá í að fá mér þennan topp sem er á myndinni fyrir ofan og buxurnar sem eru fyrir neðan... ég ætla pottþétt að kýkja á opnunina.. það er frekar fyndið útaf því að ég skoða alltaf E-label síðuna með ágætis millibili og alltaf þegar ég geri það þá gengur einhver inná stofuna í einhverju úr línuni þeirra. Þessar myndir eru úr haustlínuni hjá E-LABEL .. SNILLD;D;D;D;D Malla

Haustlína Christian Dior 2008....

Guð hvað haustlínan frá Dior er geðveik... Sixtees makeup extreme... stórir hattar og gullfallegir litir. tjékk it http://www.style.com/fashionshows/review/F2008RTW-CDIOR/

00050m.jpg 00070m_663498.jpg 00210m.jpg 00490m.jpg 00540m.jpg 00390m.jpg 00160m.jpg


Ísland er landið :D

Í dag er yndislegt og æðislegt að vera Íslendingur.... það er það nú samt alltaf ... en í dag var ég klökk af stolti.  Og reyndar líka í síðustu viku.. Handboltastrákarnir eru svo sannarlega búnir að hreyfa við allri þjóðinni með frammistöðu sinni í Peking. TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA STRÁKAR. "Gott silfur er Gulli betri" jáháá sammála.

Annars er allt bara æðislegt.... skólinn er byrjaður á ný með öllu sem honum tilheyrir... ekkert nema gleði. Litla systir er flutt í bæinn og þá síðasti unginn sem yfirgefur hreiðrið.. bara hveitibrauðsdagar og gaman hjá gamla settinu... nú erum við 3 systkinin í bænum. W00t

Ég er svo uppfull af stolti þessa dagana að ég verð nú bara að tja mig örlítið um það.... Litla systir mín yndislega barnið er svo mikið æði og er nú á framabraut í menntaskóla ... (eða sko.. já) hún á eftir að gera stóra hluti í lífinu og ég er svo stolt af því að hún er að gera það sem henni þykir skemmtilegt og er að gera stófgóða hluti sem ljósmyndari nú þegar hérna er síðan hennar www.flickr.com/photos/birtarnb

Bróðir minn litli er nú ekkert síðri listamaður og var að spila með hljómsveitinni sinni á menningarnótt í Háskóla Reykjarvíkur og er að fara að spila í Borgarnesi á rokktónleikum á laugardaginn.

Og hún Íris beib er bara að njóta sín vel í U.S.A og ég er svooo stolt af henni líka... hlakka til að heyra í henni. 

Stolt stolt stolt....

Með mig... ég elska bara litlu fjölskylduna mína og íbúðina okkar... kósý og ekkert nema það. .

Lífið mitt er pottþétt silfurverðlaun í mesta gæðaflokk þessa dagana Grin

Áfram Ísland  


Flottasta hjólið :D:D:D

Mr. Rex :D:D 
Hann er algjört bjútí og er 140 hö.... víííííí
Og ég má alveg keyra hann ef ég vill
:D

:D Bros bætir lífið... það hvílir á mér bílabölvun :D

Grin

Það er nú einu sinni þannig að maður lendir í ýmislegu í lífinu og ekki er alltaf hægt að brosa yfir öllu en þegar einn kjánalegur hlutur gerist á eftir öðrum þá sé ég ekki annað hægt en  að bæta tilveruna með smá glotti.

            Big_smile

ÉG ER BRUSSA... sjálfviðurkennd og stolt... en það er samt ekki alltaf leikur einn að þurfa að glíma við brussuna í sjálfri sér, en það hefst.

Nokkrir hlutir sem hægt er að brosa af... Áður en ég fékk mótorhjólapróf þá er ég búin að detta tvisvar sinnum... (kannski ekki fyndið þegar ég segi þetta svona en...) Einu sinni þá var hjólið stopp fyrir utan heima og ég var að hoppa af, það tókst ekki betur en svo að ég setti fótinn undir hjólið í staðinn fyrir á fasta jörð og sveiflaðist af og lenti á jörðinni. Annað skiptið var í gær 10 mín áður en ég lagði í prófið til að mega keyra mótorhjól, þá var ég í mestu makindum að æfa mig að bremsa og bremsaði svo duglega í bleytunni að hjólið henti mér af bakiBlush  sem betur fer var ég bakvið stóran vörubíl sem stóð á Frumherjaplaninu þannig að ég sást ekki...  ég tók saman alla mína krafta og lyfti 200 kg hjólinu aftur á réttan kjöl með erfiðum til þess að verða mér ekki meira til skammar og hélt áfram að æfa mig. Ninja Ég trúi því að ég komst hjá því að vera séð þegar þetta gerðist.

Ég ku ekki vera talinn besti BÍLstjórinn í bransanum  sílsabeyglir og sektarbaukur, en það er ekki hægt að segja að ég geri ekki mitt besta til að bæta mig í þessum málum, ég skaust í Borgarnes um síðustu helgi á jeppanum. Ég LOFAÐI að fara vel með hann, og það gerði ég.... keyrði ekkert óþarfa eða rúntaði, ég fór bara frá A-B... var sjálfri mér til sóma með aksturslagi mínuHalo     Þegar svo tími til að halda heim á leið, ákvað bílinn að taka smá Las Vegas ljósashow fyrir mig með því að kveikja á öllum mögulegum ljósum í mælaborðinu.... hmmmm ég stoppaði og hringdi á hjálp.   Vandamálið var athugað og þeir sem sérfróðir voru í málunum sögðu mér að þetta var ekki mér að kenna..... sem skipti ekki máli því að ég vissi að ég mundi fá "...en þú varst að keyra..."    Í þessum skrifuðu orðum er verið að laga hann svo að við getum nú lagt land undir fót um næstu helgi.

Ég er farinn að halda það að mér sé ekki ætlað að keyra bíl.... ég er ekki viss en ég finn fyrir MUN meira stressi nú þegar ég er farinn að keyra um aftur.. það var svo þægilegt að vera farþegi og þurfa bara að hafa áhyggjur af því að missa ekki af fallega útsýninu eða skipta um stöð á útvarpinu þegar það kemur leiðinlegt lag.

Ég VIL vera góður bílstjóri en ég er ekki viss um að ég verði það nokkurntíman.. ekki á bíl að minnsta kosti.. mér finnst gaman að keyra mótorhjól en alls ekkert gaman að keyra bíl..  Það er nú eitt að keyra bíl í litla Borgarnesi ekkert stress nema bara það að lögreglan hefur ekkert betra að gera en að sekta fólk fyrir að keyra of nálægt sér, vera með tónlistina of hátt eða ef þú kemur við á gróðrastöð áður en þú kemur í Borgarnes skaltu passa þig að blómin sem þú ætlar að setja niður í garðinum vekji ekki mikla athygli, það gæti endað með þvi að þú værir yfirheyrður fyrir að kaupa nokkrar morgunfrúr....Borgarnes lögreglan ætti nú að hafa það mikla reynslu í fíkniefnamálum að þeir ættu að þekkja munin á fagurfífli og kannabisplöntu, en það var ein sem komst að því að það er ekki raunin. En það er ekkert sem ég þarf að hafa áhyggjur af ég er svo mikill góðkunningi þeirra Grin ....stoppa mig bara til að spjalla !    Og svo að keyra í Reykjavík, fólk keyrir OF hratt... OF hægt... OF illa... eða ég veit það ekki, málið er að það eru allir á skrilljón að komast frá A-B því að þeim finnst örugglega alveg jafn leiðinlegt og mér að keyra hér í bæ.... ég hef nú lent í því að pirra einn svo mikið með því að gefa ekki stefnuljós þegar ég var að skipta um akgrein að þegar ég stoppaði á næsta rauða ljósi var ekki nóg að vera búin að keyra í rassgatinu á mér og gefa mér puttann í 5 mín heldur ákvað kauði OG 2 vinir hans að koma út úr sínum bíl, rífa hurðirnar upp hjá mér sitthvoru meginn og HELLA sér yfir mig, það sem bjargaði mér frá því að vera barinn og dreginn útúr bílnum mínum var það að ég var STELPA.Frown Ýmislegt hefur nú komið fyrir síðan ég fékk bílprófið og ég er ekki viss um að mér sé ætlað að aka um á bíl á vegum landsins....  eða hvað?

 Nóg um það

GLEÐILEGA VERSLUNARMANNAHELGI OG SKEMMTIÐI YKKUR FALLEGA OG KEYRIРVARLEGA  !!!!!

 


Mig langar í ferðalag....AFTUR

 

Fór í Þórsmörk síðustu helgi og það var svoooo gaman... :D   Ég, Binni, Fannar og Birta sæta lögðum af stað á föstudagskvöldið í geggjuðu veðri með nesti og nýja vindsæng.... handa Fannari að sofa á :D   Keyrðum í Þórsmörk og lentum þar rétt um miðnætti og veðrið var enþá í góðu skapi nema auðvitað pínulítið svalara en þegar við lögðum af stað.... Þórsmörk nottlega sló mann útaf laginu með þeirri óskapar fegurð sem þar er... Geggjað landslag og jöklar allt í kring InLove ég elska Þórsmörk. En við byrjuðum þá að taka til tjöldin til þess að henda þeim upp... kom þá í ljós að tjaldið sem að ég og Brynjar höfðum fengið í hendurnar (geðveikt Vodafone tjald af mestu gæðum) var allsbert og gegnsætt því að enginn himinn var sendur með því.... þannig að við fundum góða lausn og sváfum 4 saman í tjaldinu sem Fannar kom með.... freeeekar þröngt en þetta hafðist... Binni gerðist vekjaraklukkan í ferðinni og fór á fætur 6 á laugardagsmorgun... spilaði smá Pál óskar um 6.30.... örugglega ekki vinsælt þar sem ófáir voru að fá sér í glas og með partí langt frammeftir nóttu kvöldið áður.  Kl 9 vorum við svo öll að staulast á fætur og eftir að hafa fengið okkur morgunmat fórum við í góða gönguferð uppá klettinn sem gnæfir yfir tjaldstæðið... OMG hvað það er flott útsýni þarna ... manni finnst maður bara vera komin í einhvern ævintýraheim þegar maður er að labba þar upp líka... ég og Birta vorum nú bara fyrir neðan þetta bjarg á meðan karlmennirnir í hópnum klifruðu uppá topp...duglegir Grin

Við chilluðum og sóluðum okkur áður en við lögðum af stað smá rúnt á JEPPUNUM.. Elsku elsku jeppunum og þar sem þetta var jómfrúarferðin hans Fannars á Perranum þá var ekki um annað að ræða en að gera þetta með stæl og leggja í hina ógurlegu KROSSÁ Devil   Heimamenn segja að það hafi aldrei verið meira í ánni en akkúrat þessa helgi (eða það segja strákarnir allavega Tounge) og var þetta ógurleg hættuför... þeir eru svo hugrakkir þessir drengir.. við fórum yfir Krossá og inní Húsadal sem er gullfallegur staður líka.... eftir lítinn rúnt fórum við tilbaka og aftur yfir Krossánna ógurlegu... og gerðum það með einstökum glamúr.  Geggjað gaman.

Þegar við héldum til baka inná tjaldsvæði var eins og hellt úr fötu beint yfir tjalsvæðið, við skriðum inní tjaldið öll í klessu og ákváðum að það væri góður tími til að leggja sig... það rigndi ekki lengi og sólinn lét sjá sig eftir smá... eins og sannir útilegumenn fórum ég og Birta að finna rafmagn í Þórsmörk til þess að getað slétt á okkur hárið.... og viti menn okkur tókst það.. ég má ekki segja hvernig en það hafðist og ég hætti að líta út eins og ég hafi skriðið útúr oftroðnu tjaldi... Við grilluðum eðalmat og héldum svo okkar eigins litlu brennu ... í fötugrillinu sem ég keypti í Europris ..tær snilld. Seinna um kvöldið var svo stór brenna og allir komu saman til að syngja og detta í brekkunni... eða var það kannski bara ég sem datt...???? eða flaug öllu frekar.Blush Það vildi svo heppilega til að þetta skömmustulega atvik náðist á vídeo...hmmmm

En þetta var ógeðslega skemmtileg helgi og ég ætla að heimta að fara í fleirri útilegur... með tjald með himin með... helst... og takk elskurnar mínar fyrir geðveikt skemmtilega ferð Kissing

 


Tónleikar ÁRSINS...

Draumur minn hefur ræst GusGus og David Guetta kominn saman á einum tónleikum.... kannski er ég lúði eða einhvað en ég fór á GusGus 3 sinnum á síðasta ári og þau voru í öll skiptin alveg GEÐVEIK... ég elska GusGus alveg útaf lífinu og svo David Guetta sá ég í París síðasta febrúar og það á einum flottasta klúbb í París (Le Mix Club) og hann næstum straukst við okkur þegar hann mætti á svæðið á leið sinni uppá svið... GEÐVEIKT... og núna 16.júní þá eru þessir snillingar að koma saman.... O...mæ..o...mæ Þetta er reyndar geðveikt klikkað myndband frá Le mix club en þetta var líka akkúrat svona :D:D:D:D 16.Júní Gusgus og David ... víííííí :D

Jæja.. þá er það mál málanna... Förðunarkeppnin Street Fantasy 2008

Hún verður haldin á Rúbín þann 29.mai með pompi og pragt... vonandi ;)

 Allir að kýkja á www.myspace.com/fantasystreet :D:D:D:D


STÓRT Í VÆNDUM!!!

Fylgjast með bloggi á næstu dögum.... SPENNANDI...

Þangað til á að nota ímyndunaraflið... það gæti komið sér vel :D:D:D:D


Litli Bróðir minn !!!

mattei

ég tók smá league of gentelmen makeup á hann að hans eigin ósk og þetter útkoman...spooky!!!!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband